24.8.2007 | 22:02
Útileigumaðurinn Rassmuss in love!
Stundum stendur maður sig að því að hafa misskilið eitthvað frá blautu barnsbeini og halda ennþá í sömu vitleysuna. Þetta á t.d. við hjá mér þegur kemur að sönglagatextum. Í laginu "Ríðum, ríðum..." er talið um útilegumenn en einhvern veginn hélt ég alltaf að um "útileigumenn" væri að ræða. Það væru þá svona menn sem leigðu hvergi, þ.e.a.s. segja úti (ótrúlega gáfulegt). Ég var að nálgast þrítugt þegar ég fattaði þetta. Síðan var lag með Villa Vill sem sagði á einum stað: "Við stelpurnar segi ég ástarljúf orð". Ég stóð lengi í þeirri meiningu að hér væri allt annað á ferðinni, nefnilega enskusletta: "Við stelpurnar segi ég ást are you love". Já svona var maður einfaldur. Þá var ég sem barn (og er enn, enda mikið barn í mér) hrifinn af Halla og Ladda. Þeir sungu lagið um Rassmuss sem ég kunni utanað án þess þó að það meikaði einhvern sens fyrir mér.
Svona er textinn af því lagi.
Ég átti eitt sinn vin,
hverfult var hans kyn
Hann var viðriðinn,
við riði og gin,
ávalt misskilinnÞú vara, þú vara, þú varadekk!
Við áttum leynifund,
dýrleg var sú stund,
ég missti meðvitund
vaknaði við það,
að Rassmuss kom þar að
og tróð sér í minn staðHvað ert þú
að gera í mínum stað?
Ég þoli ei það, það, það.ég átti aðeins stutta leið hér hjá
og vildi sjá
hver lá þér hjáSvo komst ég að
hann hafði svikið mig
og farið á bak við þigÓ Rassmuss minn,
nú er hann vinur þinn
Sólgrímur minn,
vinurinn minnÞegar Solli sigldi burt
Með þessum búðardurt
dó mín lífsins urt
síðan hef ég spurt
hvers vegna hann nam
land í Amsterdam?
Um hvað er þessi texti eiginlega?
Athugasemdir
Við lestur ofangreinds ljóðs fékk ég á tilfinninguna að það fjalli um óhamingjusaman homma, eiginlega óttalegann lúser og vælukjóa.
Annars var það Raggi Bjarna sem gerði lagið þar sem eftirfarandi stetningin kemur fyrir: ,,Við stelpurnar segi ég ástarljúf orð, einn tveir þrír kossar svo stekk ég um borð. Hinsvegar má vel vera að Villi Vill hafi sungið þetta lag líka inn á plötu.
Jóhannes Ragnarsson, 24.8.2007 kl. 22:14
Auðvitað var það Raggi Bjarna. Ég veit ekki af hverju ég heyri rödd Villa Vill þegar ég hugsa um lagið. Kannski heyri ég ekki bara vitlausan texta heldur líka rangar raddir (Nú er kominn tími á viðtöl!).
Bjarni Thor Kristinsson, 24.8.2007 kl. 22:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.