Færsluflokkur: Bloggar
29.7.2007 | 12:11
Eru Íslendingar miklir skemmdarvargar miðað við höfðatölu?
Þetta er því miður ekki í fyrsta skipti sem skemmdarvargar ganga berserksgang á hlutum sem þeir eiga ekki sjálfir. Mér er minnisstætt útvarpsviðtal sem ég heyrði við starfsmann Pósts og síma fyrir mörgum árum síðan. Þetta var milli jóla og nýárs og var umræðuefnið allir þeir póstkassar sem sprengdir eru í áramótavikunni. Mér er líka minnisstætt að sjá sundurskorinn sæti í strætó og svo auðvitað ónýta símaklefa hér og þar um Reykjavík. Nú hef ég verið búsettur á meginlandi Evrópu í langan tíma og hef oft veitt því eftirtekt að hlutir í almannaeign eru frekar látnir í friði þar en á Íslandi. Samt eiga þessi lönd (m.a. Þýskaland) við ýmis vandamál að etja sem eru okkur næstum óþekkt eins og t.d. atvinnuleysi. Það liggur því beinast við að halda að skemmdarverk séu enn eitt höfðatöluheimsmetið án þess þó að ég hafa neina tölfræði fyrir mér í því sambandi.
En hver er skýringin? Hverir eru þessir skemmdarvargar? Þetta tengist örugglega oft áfengis- og eiturlyfjaneyslu og stundum er kannski um einhvers konar manndómspróf að ræða; þú verður að sýna vinunum að þú "þorir". Einhverjir þeirra sem skemma eiga auðvitað við geðræn vandamál að stíða og svo getur verið að eitthvað persónulegt eða pólitískt liggi að baki.
Hvað sem skýringum líður þá ber okkur að fordæma skemmdarverk og draga þá sem þau vinna til ábyrgðar.
Skemmdarverk unnin á björgunarskipi í Sandgerðishöfn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.7.2007 | 21:18
Í sérsaumuðum jakkafötum með rauðvín og vindil!
Það styttist óðum í frumsýninguna okkar á Brúðkaupi Fígarós hér í Vín. Langt æfingaferli er þá senn á enda og 7 kvöld í ágúst stöndum við saman á sviðinu í Theater an der Wien, alþjóðlegi söngvarahópurinn sem eytt hefur sumrinu saman hér í háborg menningarinnar. Þetta hefur að mörgu leyti verið mjög sérkennilegt æfingaferli. Við fengum m.a. heila viku í frí vegna þess hve vel á veg vinnan var komin um miðjan júlímánuð. Það kom sér einkar vel fyrir mig enda með heimsókn frá Íslandi sem mig langaði til að sinna svolítið vel. Þessi vika var síðan sú heitasta í manna minnum, eða eins og Örvar fyrrum nágranni minn Kristinsson sagði, þá var þetta sannkallað óveður. Allar hitatölur sem eru nær 40 en 30 gráðum eru ekki til þess fallnar að eitthvað sé annað hægt að gera en að loka sig inni eða hlaupa á milli safna og verslana sem bjóða upp á loftkælingu. Við skötuhjúin skelltum okkur m.a. á 3 söfn og létum aldagamla hollenska, austurríska og ítalska málara stytta okkur stundir.
En aftur að Brúðkaupi Fígarós. Þrátt fyrir óvænt hlé á miðjum æfingatímanum hefur uppfærslan verið lýjandi. Þannig er að allir söngvararnir þurfa að vera á sviðinu allan timann. Amen. Aumingja stúlkan sem syngur Barbarínu er því á fjölunum í meira en tvo tíma áður en hún fær að þenja raddböndin. Hvað um það, þetta gæti orðið skemmtilegt brúðkaup. Jakkafötin mín bæði eru auðvitað sérsniðin og þar er ekkert til sparað. Jakkinn sem ég er í í öðrum þætti fellur að mér eins og flís í rass en því miður er ég í frakka líka þannig að lítið sést af honum. Milli þess sem ég syng fæ ég síðan að sötra rauðvín (hindberjasafa) og leggja mig í sólstól.
Það verður spennandi að sjá hvernig allt þetta brölt leggst í Vínarbúana á miðvikudaginn. Meira um það síðar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)